Innifalið í öllum pökkum
Þú þarft ekki að kunna neitt á vefsíður. Við sjáum um allt og þú sendir okkur línu þegar eitthvað þarf að breytast.
Hönnun fyrir þitt fyrirtæki
Útlit, liti og myndir veljum við út frá því sem þú gerir.
Textar
Við skrifum textana með þér, á fleiri en einu tungumáli fyrir viðskiptavini á Íslandi og erlendis.
Hýsing án takmarkana á gagnaflutningi
Hraðvirkt net netþjóna um allan heim, SSL-skilríki og vörn gegn DDoS-árásum. Þú borgar ekki meira þótt umferðin aukist.
Afrit
Afrit af vefnum við hverja breytingu og daglegt afrit af gögnum, til dæmis bókunum. Fyrri útgáfu endurheimtum við á nokkrum mínútum.
Smábreytingar í hverjum mánuði
Ný verðskrá, opnunartími eða myndir? Þú sendir tölvupóst og við gerum breytinguna.
Einn tengiliður
Þú talar beint við manneskjuna sem smíðaði vefinn þinn. Engar þjónustubeiðnir eða símaver.
Pakkar
Eitt mánaðargjald og ekkert stofngjald. Þú getur skipt um pakka hvenær sem er.
Segðu okkur frá fyrirtækinu þínu
Við svörum yfirleitt innan eins virks dags með tillögu að pakka og verði.
- Netfang
- sala@vefland.is
- Heimilisfang
- Aðalstræti 24400 Ísafjörður