Samtal
Þú segir okkur frá fyrirtækinu og hvað vefsíðan á að gera. Við mælum með pakka sem hentar.
Hönnun
Við sýnum þér fyrstu útgáfu vefsins og lögum hana með þér þar til allt er eins og það á að vera.
Opnun
Vefurinn fer í loftið á þínu léni. Fyrsta greiðslan er ekki innheimt fyrr en vefurinn er kominn í loftið.
Umsjón
Í hverjum mánuði sjáum við um vefinn og gerum þær breytingar sem þú biður um.
Innifalið í öllum pökkum
Þú þarft ekki að kunna neitt á vefsíður. Við sjáum um allt og þú sendir okkur línu þegar eitthvað þarf að breytast.
Hönnun fyrir þitt fyrirtæki
Útlit, liti og myndir veljum við út frá því sem þú gerir.
Textar
Við skrifum textana með þér, á fleiri en einu tungumáli fyrir viðskiptavini á Íslandi og erlendis.
Hýsing án takmarkana á gagnaflutningi
Hraðvirkt net netþjóna um allan heim, SSL-skilríki og vörn gegn DDoS-árásum. Þú borgar ekki meira þótt umferðin aukist.
Afrit
Afrit af vefnum við hverja breytingu og daglegt afrit af gögnum, til dæmis bókunum. Fyrri útgáfu endurheimtum við á nokkrum mínútum.
Smábreytingar í hverjum mánuði
Ný verðskrá, opnunartími eða myndir? Þú sendir tölvupóst og við gerum breytinguna.
Einn tengiliður
Þú talar beint við manneskjuna sem smíðaði vefinn þinn. Engar þjónustubeiðnir eða símaver.
Viltu nýja vefsíðu fyrir fyrirtækið þitt?
Segðu okkur hvað þú gerir og við svörum með tillögu að pakka og verði.