Spurningar og svör

Finnurðu ekki svarið? Sendu okkur línu og við svörum.

Af hverju er ekkert stofngjald?

Við dreifum kostnaðinum við smíði vefsins á áskriftina. Þess vegna er samningurinn að lágmarki 12 mánuðir.

Hvernig bið ég um breytingu?

Sendu okkur tölvupóst með því sem á að breytast. Smábreytingar innan marka pakkans gerum við yfirleitt innan nokkurra virkra daga.

Hvað ef eitthvað fer úrskeiðis á vefnum?

Við tökum afrit af vefnum við hverja breytingu og geymum alla útgáfusöguna ótímabundið. Gögn, til dæmis bókanir, eru afrituð daglega. Fyrri útgáfu endurheimtum við á nokkrum mínútum.

Sjáið þið líka um tölvupóst?

Já. Við setjum upp pósthólf á þínu léni, t.d. jon@fyrirtaekid.is, sem virka í öllum póstforritum og í símanum. Eitt pósthólf er innifalið í pökkunum Vöxtur og Plús og hvert viðbótarpósthólf kostar 990 kr. á mánuði. Ef þú notar nú þegar Google Workspace eða Microsoft 365 verður pósturinn áfram þar.

Hver á lénið?

Þú. Lénið er skráð á fyrirtækið þitt og ef þú átt ekki lén enn þá hjálpum við þér að kaupa það.

Get ég sagt upp?

Já, eftir fyrstu 12 mánuðina með eins mánaðar uppsagnarfresti. Lénið er áfram þitt.

Smíðið þið vefverslanir?

Ekki að svo stöddu. Við einbeitum okkur að fyrirtækjavefjum. Einföld vöru- eða þjónustuskrá rúmast í pakkanum Vöxtur eða Plús.

Viltu nýja vefsíðu fyrir fyrirtækið þitt?

Segðu okkur hvað þú gerir og við svörum með tillögu að pakka og verði.

Hafa samband